Mörgum þykir langt að fara austur í Breiðdalsá og Jöklusvæðið og bæði tími og eldsneyti kostar sitt. En það er lausn á þessu vandamáli með því einfaldlega að fljúga til Egilsstaða og taka jeppa á leigu og þar með eru menn komnir í Jöklu á innan við tveim tímum frá Reykjavik, og rúmlega það í Breiðdalinn.
Að leigja jeppa getur kostað töluvert en nú ætla Veiðibílar sem voru að bjóða bíla sýna í tengslum við Laxá í Aðaldal og Vopnafjörðinn sumarið 2012 að vera með bíla sína líka á Egilsstaðaflugvelli næsta sumar. Og kostnaðurinn er um kr. 20.000 á dag og fyrir 3-4 veiðimenn á leið í okkar svæði þarna fyrir austan er það tilvalinn og ódýr kostur að taka einn bíl saman á flugvellinum og málið leyst! Og svæðin okkar eru fimm þarna fyrir austan, bæði í lax og silung og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, en þau eru eftirfarandi:
- Breiðdalsá 6-8 stangir og skyldufæði í glæsilegu veiðihúsi.
- Silungasvæði Breiðdalsár 6 stangir á vorin og 4 stangir eftir það, gisting án fæðis.
- Jökla I og Fögruhlíðará 6-8 stangir og ýmist fæðiskylda eða eingöngu bara gisting tekin.
- Jökla II með 6 stangir og engin gisting, en hægt er að fá gistingar í nágrenninu.
- Fögruhlíðarós ásamt neðsta hluta Jöklu með 3 stangir og gisting án fæðis.
Tilvalið fyrir smærri hópa sem og jafnframt stærri hópa hvort sem vilja mikinn lúxus eða bara einfalda og góða gistingu sem kostar lítið.
Spyrjið um nánari uplýsingar.

| Share |