Gæsaveiði á einkasvæðum er innifalið í veiðileyfum á svæðinu Jökla I og Fögruhlíðará og hér er afrakstur morgunflugs við Veiðihúsið Hálsakot.
Í nágrenni veiðihússins Hálsakots, veiðihúss Jöklu og Fögruhlíðarár eru mjög góðar gæsaveiðilendur sem Veiðiþjónustan Strengir hefur einkarétt á. Eftir 20. ágúst geta stangveiðimenn í veiðihúsinu Hálsakoti komist í gæsaveiði þar án aukagjalds. Leitið eftir nánari upplýsingum.
Ljóst er að rjúpnaveiði verður leyfð á þessu ári eins og undanfarin ár og af fregnum að dæma er rjúpan í mikilli uppsveiflu víða um land. Við bjóðum upp á rjúpnaveiði með gistingu að Eyjum í Breiðdal og einnig á gjöfulum veiðilendum í nágrenni veiðihússins Hálsakots sem stendur við bakka Kaldár í Jökulsárhlíð. Á báðum stöðum höfum við byggt upp aðbúnað sem stenst samanburð við það besta sem völ er á. Stefnt er að því leigja bæði húsin til hópa og almennt verður miðað við 6─12 manns í senn í rjúpu frá hvoru veiðihúsi. Hægt er að fá fæði og frekari þjónustu, eins og leiðsögn, ef hópar óska þess en algengast er að tekin sé gisting og rjúpnaveiði án þessarar þjónustu.
Leitið upplýsinga um verð og lausa daga í tölvupósti á ellidason(hjá)strengir.is eða í síma 567 5204.

| Share |