Óhætt er að segja að veiðisumarið 2011 var mjög gott á okkar svæðum og ber þar af hin frábæri árangur fyrir austan í Breiðdalsá og á Jöklusvæðum. Og hefur stórlaxastefna Strengja skilað frábærum árangri í stærð laxa sem veiddist í þessum ám í sumar og fjölda þeirra, en ný og glæsileg met voru slegin þar með 1.430 löxum veiddum í Breiðdalsá og 565 í Jöklu og hliðarám ásamt Fögruhlíðará. En þessi uppbygging hefur kostað gríðarlega fjármuni og ekki verður komist hjá einhverjum hækkun veiðileyfa til að standa undir þeim kostnaði.
NÝTT! Reglur verða hertar í laxveiðiám okkar fyrir sumarið 2012, en hingað til hef ég ekki talið þörf á að setja kvóta á fjölda laxa sem má hirða í lok veiðidags. En ég verð a segja að mér blöskraði stundum í þeirri góðu veiði sem var í sumar fyrir austan hvað menn nýttu sér að drepa hvern einasta lax undir mörkum sem voru 70 cm fyrir hrygnur og 75 cm fyrir hænga, þó kælir/frystikisturnar væru orðnar fullar af laxi í veiðihúsunum og menn búnir að veiða meira en nóg í matinn. Því hafa mörkin verið sett niður í 70cm fyrir bæði kyn og kvóti tveir laxar á stöng á dag sem má drepa undir þeim mörkum í bæði Breiðdalsá og Jöklu, en stunda má veiða og sleppa að vild að öðru leyti. Einnig verður maðkveiði aflögð í Breiðdalsá í september til að tryggja að menn fylgi reglum betur, en spónveiði verður þó leyfð áfram í september, enda lítið mál að sleppa laxi sem veiddur er á spón.En ennþá verður óbreytt að allt agn er leyft í september á Jöklusvæðum en kvótinn sá sami þar líka. Reyndar verður alveg bannað að drepa lax í Steinboganum eða ofar í Jökuldal enda eru vannýtt uppeldissvæði komin í ljós þar efra og vantar hrygningu á svæðið, því verður að vernda lax sem er á þeim svæðum. Og einungis 20% laxa sem veiddust í Hrútafjarðará 2011 var sleppt aftur í ánna, og fjölmargir stórlaxar voru drepnir yfir sumarið. Því verður það ekki lengur tilmæli að sleppa stórlaxinum í Hrútu heldur skal það verða regla fyrir sumarið 2012 að sleppa löxum 70 cm og stærri aftur í ánna, en engin kvóti verður settur á smálax sem má hirða þar líkt og í Breiðdalsá og Jöklusvæðum. Brot á þessum reglum geta varðað brottvísun úr ánum!
Nú má segja að silungasvæðið í Breiðdalsá séu líka orðin laxveiðisvæði enda virðir laxinn engin svæðamörk þegar hann gengur frjáls um ánna. Og hóflegt verð miðað við laxveiðivonina sem þar er nú í júlí og til september þrátt fyrir hækkun á milli ára. En sjóbleikjuveiðin stendur líka alltaf fyrir sínu og einnig er staðbundinn urriði á efri svæðum. Fjórar stangir eru þá leyfðar og tilvalið fyrir smærri hópa eða fjölskyldur. Gistingin er í rúmgóðu húsi í Norðurdal þar sem eru fimm svefnherbergi og geta gist allt að 6-8 manns.
Óhætt er að segja að engin veiðiá hér landi býður upp á eins mikla stórurriðaveiði og Minnivallalækur og nýtur hann mikilla vinsælda. Mörg fastaholl vilja halda sínum hollum þar og er því minna framboð af dögum til sölu en oft áður. Óbreytt verð verður kr. 19.800 á stöng á dag með gistingu nema í júní og júlí verður hækkun í fyrsta sinn í nokkur ár.
Frábær veiði var á nýja vatnasvæð við Jöklu og Fögruhlíðará og sérstaklega í Jöklu sjálfri sem var veiðanleg og án yfirfalls langt inn í september. Óhætt er að segja að verðlag er hóflegt miðað við veiði á stöng enda eru eingöngu sex stangir leyfðar þar á svæðinu Jöklu I og Fögruhlíðará. NÝTT! Bætt verður við litlu húsi á verönd með "sauna"fyrir sumarið 2012 sem verður án efa velkomin þægindi fyrir gesti veiðihússins eftir góðan veiðidag á Jöklusvæðunum.
Hrútafjarðará gaf 318 laxa sem er í raun og veru rúm meðalveiði árinnar og ekki slæmt á þrjár stangir. Töluvert var þó af laxi en þurrkar um mitt sumar gerðu veiði erfiða á köflum. Áin gaf óvenju marga stórlaxa 2011, en einnig meiri bleikjuveiði sem er frábær viðbót við laxveiðina. Verð veiðileyfa verður að mestu svipað árið 2012 og var áður, en einhver lítilsháttar hækkun vegna verðlagsþróunnar verður þó að vera.
Tungulækur byrjaði með látum í vorveiðinni en eldgosið í Grímsvötnum gerði svo strik í reikninginn og lækurinn náði ekki þeirri frægu veiði sem hann er þekktur fyrir fyrr en seint í haust aftur. Þrátt fyrir það er heildartalan um 1.160 fiskar, þar af 120 bleikjur og 3 laxar og þar með veiddust ríflega 1000 sjóbirtingar sem er án efa ein besta sjóbirtingsveiði landsins og þó víða væri leitað. Stefnir í óbreytt verð eða jafnvel lækkanir fyrir 2012 en nánari upplýsingar verða birtar á vefnum fljótlega.
Veiðiþjónustan Strengir ehf hefur verið starfrækt síðan 1988 og því eru rúm 20 ár síðan ævintýrið byrjaði. Lögð er áhersla á persónulega og heiðarlega þjónustu við viðskiptavini. Vona ég að heyra frá ykkur sem fyrst því bókanir fyrir 2012 eru nú þegar mun meiri en áður á þessum tíma, en ég mun koma til móts við óskir ykkar eftir bestu getu og hlakka til að heyra í ykkur.
Með ósk um ánægjulegt veiðisumar.
Þröstur Elliðason