Strengir

EnglishEnglish

SpainEspañol

FranceFrançaise

GermanDeutsch

ItaliaItaliano

Suomalainen

 

Breiðdalsá silungsveiði - Almennar upplýsingar

 
Staðsetning: Fjarlægð frá Reykjavík: 615 km
Fjarlægð frá Egilsstöðum: 80 km
Veiðisvæði:

Veiðisvæðið sem um ræðir er víðfemt og síbreytilegt. Í vorveiðinni frá 1. maí - 30. júní er veitt bæði neðst á ósasvæðinu og að og með Eyjanesi, sem og efst í Breiðdalsánni sjálfri þar sem hún líður rólega um efri hluta Breiðdals ofan Efri-Beljanda. Frá 1. júlí og út veiðitímann breytast þessi efri svæði og færast ofar en á sama tíma kemur einnig efra svæðið í Norðurdal inn og laxveiðivonin stóreykst.

Tímabil: 1.maí - 30.september.
Veiðileyfi:

Hægt að kaupa heila eða hálfa daga, eða 2-3 daga holl, allt eftir óskum veiðimanna og stöðu lausra leyfa.

 

Daglegur veiðitími:

Veiðimenn mega haga veiðitíma að eigin óskum en þó innan 12 stunda ramma á hverjum sólarhring á ósasvæðinu en á öðrum svæðum ofar í ánni má veiða á bilinu 7-13 og 16-22 og síðsumars 15-21. Brottfarardag skal veitt til kl. 12:00.

Fjöldi stanga: Leyfðar eru 6 stangir um vorið en síðan eru 4 stangir leyfðar fra 1. júlí.
Verð:

Stöng á dag 14.800 kr. og eftir 1. júlí kr. 24.800 og gisting alltaf innifalinn.

Veiðireglur: Leyfilegt agn er  fluga, spónn og maðkur og skyllt er að sleppa aftur löxum 70 cm og stærri. Leyfilegt er að hirða tvo laxa á stöng á dag undir þeim mörkum og einnig allan silung.
Vinsælar flugur: Hinar ýmsu straumflugur hafa verið að gefa vel í bleikjunni og ber þá helst að nefna bleikjuflugur Súdda veiðivarðar. Straumflugur hafa líka gefið vel í urriðann í byrjun sumars og þá sérstaklega þær sem gætu líkt eftir laxaseiðum. Þegar líða fer á sumarið fara púpur og þurrflugur að gefa vel. Fyrir lax er Sunray Shadow, Rauð Frances í ýmsum útgáfum að virka vel, og ekki má gleyma líka Snældunni.
Veiði síðastliðið ár:

Um það bil 20 laxar, 101 sjóbleikjur og 472 urriðar/sjóbirtingar.

Umsjónarmaður/veiðivörður:

Sigurður Staples (Súddi) Sími 660 6894 og 475 6776 (Veiðihús).


 

Share

Veiðiþjónustan Strengir

Smárarimi 30

112 Reykjavík

Sími: 660 6890

Fax: 31 848679026

Netfang: ellidason@strengir.is

www.strengir.is