Frá Veiðihúsinu Eyjar þar sem vel fer um silungsveiðimenn í vorveiðinni.Veiðihús vorveiði 1. maí -30. júní: Á bökkum Breiðdalsár, í landi Eyja sem eru neðarlega við ána, er nýlegt veiðihús sem býður upp á eina glæsilegustu gistiaðstöðu á landinu. Átta tveggja manna uppbúinn herbergi, hvert með sérbaðherbergi, gervihnattasjónvarpi og internettengingu. Þar af bíður glæsisvíta þeirra sem virkilega kunna að vera góðir við sjálfa sig. Í húsinu er gufubað og þaðan er útgengt í heitan pott. Borðstofa og setustofa eru með konunglegum aðbúnaði þar sem glæsilegur arinn er áberandi ásamt uppstoppuðum fuglum og fiskum á veggjum. Stór verönd er með grilli og góðri aðstöðu til útiborðhalds. Glæsilegt útsýni er yfir ómótstæðilegan fjallahring Breiðdalsins. Hundahald er EKKI leyfilegt í húsinu. Síminn þar er 475 6776. Gisting er skylda í veiðihúsinu í maí og júní og kostar veiðileyfið með gistingu kr. 14.800 sem er hóflegt verð miðað við þann lúxus sem er innifalinn. Tilboðsverð eru í boði fyrir hópa. Flestir kjósa að elda sjálfir og hafa allan aðbúnað til þess en ef óskað er geta hópar fengið tilboð með fullu fæði og þjónustu.
Húsið sem fylgir með silungasvæðum sumarið 2011 í júlí til loka september, rúmgott og tilfallið fyrir smærri hópa.Veiðihús 1. júlí -30. september: Ágæt reynsla kom á þetta hús sumarið 2011 og verður það áfram í boði fyrir veiðimenn á þessu svæði. Þó engin lúxus en er þó rúmgott íbúðarhús með 5 herbergjum, baðherbergi, stofu og eldhúsi ásamt þurrkherbergi við bakdyrnar. Grill er á verönd, og frystikista fyrir aflann verður komin fyrir sumarið en það vantaði sl sumar. Verður innifalið uppbúinn rúm og kostar stöngin á dag kr. 24.800 með gistingunni. Tilvalið fyrir smærri hópa 4-8 manna að taka húsið og allt svæðið til að hafa út af fyrir sig.