Flottur lax opnunardaginn 1. júlí 2011 í Efri-Beljanda
Frábær laxveiðiá í fögru umhverfi og mikil stórlaxavon. Glæsilegasta veiðihús landsins!
Undanfarin ár hefur Breiðdalsá verið að stimpla sig inn sem ein af bestu laxveiðiám landsins og sumarið 2011 hélt þessi skemmtilega þróun áfram. Áin endaði í 1.430 löxum og það er sannarlega glæsilegt met í ánni og hefur verið stöðugur stígandi undanfarinn ár. Mikið af stórlaxi veiddist og rúmur helmingur aflans var tveggja ára lax úr sjó. Lax var komin snemma og þegar í júní var komin töluvert af laxi í ánna fyrir opnun. Og lax var að ganga síðan allan veiðitímann til loka 30. september og varð veiðin mjög jöfn yfir allt sumarið, nema að um tíma í september voru tíðar rigningar og flóð sem höfðu áhrif þá á veiði.
Nýtt! Fyrir sumarið 2012 verður kvóti tveir laxar á stöng á dag fyrir laxa sem eru undir 70 cm, en öðrum löxum skal sleppt aftur í ánna. Og maðkur verður alveg bannaður, en áfram verður leyfilegt að veiða á spón í september.
Óvíða veiða menn í fallegri á en Breiðdalsá og óvíða í fallegra umhverfi. Og engin spurning er um að óvíða gista menn síðan í glæsilegra veiðihúsi en sumarhöllinni okkar að Eyjum. Sumum þykir langt að aka alla leið austur til okkar en öðrum finnst það bara auka á ánægjuna að aka langan veg til framandi og fallegra landshluta. Þeim fer fjölgandi og nokkur hópur hefur það auk þess fyrir sið að fljúga til Egilsstaða og taka þar bílaleigubíl.
Glímt við lax í Bryggjustreng
Lax úr Skammadalsbreiðu á einum af fáum sólardögum í Breiðdal sumarið 2011








