Strengir

EnglishEnglish

SpainEspañol

FranceFrançaise

GermanDeutsch

ItaliaItaliano

Suomalainen

 

Hrútafjarðará

Stórlax úr Réttarstreng 23 september 2010. Hann var 103 cm og rúm 10 kg.Stórlax úr Réttarstreng 23 september 2010. Hann var 103 cm og rúm 10 kg. 

Ein gjöfulasta fluguveiðiá landsins.

Hrútafjarðará ásamt Síká átti meðalveiðisuma árið 2011 en áin gaf 318 laxa á stangirnar þrjár. Laxinn kom seinna en undanfarinn ár og slæm skilyrði vegna þurrka síðsumars höðfu einnig áhrif, en engu að síður viðunandi veiðitölur. Og aftur var mikið um stórlaxa eins og víða annarsstaðarog nokkrir um og yfir 10 kg veiddust. Sjóbleikjuveiðin var ágæt en um 120 bleikjur eru færðar til bókar, margar vænar.

Einungis er leyft að veiða á flugu í ánni og hefur sá háttur verið á um árabil. Einungis þrjár stangir eru leyfðar í ánni í einu og er því vel rúmt um veiðimenn. Gefur það möguleika á að hvíla veiðistaði og berja ekki lengi á sömu fiskunum. NÝTT! Nú verða hertar reglur um að sleppa stórlaxi og skyllt er að sleppa nú öllum laxi 70cm og stærri, en engin kvóti settur þó á veiðina eins og í Breiðdalsá og Jöklusvæðinu.

En Hrútafjarðará þarfnast víst engra kynninga meðal veiðimanna og erum við stolt af að geta boðið veiðimönnum til veiða í þessari frægu laxveiðiá.

Sírus gaf vel í sumar og þessi stórlax kom snemma  eða 5. júlí en góð veiði var fyrstu vikuna í júlí 2010 enda vatn gott þá.Sírus gaf vel í sumar og þessi stórlax kom snemma eða 5. júlí en góð veiði var fyrstu vikuna í júlí 2010 enda vatn gott þá.

Veiðiþjónustan Strengir

Smárarimi 30

132 Reykjavík

Sími: 660 6890

Fax: 31 848679026

Netfang: ellidason@strengir.is

www.strengir.is