Veiðihús fyrir Hrútafjarðará er í landi Bálkastaða neðarlega í ánni að austanverðu, á milli Síkár og gamla Staðarskála. Fjögur tveggja manna herbergi eru í húsinu sem eru uppábúinn og með handklæðum við komu veiðimanna sem mega koma um og eftir kl. 14 á komudegi. Því geta átta manns gist í húsinu. Tvö baðherbergi með sturtu, sérstakt vöðlu-og þurrkherbergi og fiskmóttaka eru í húsinu. Gott eldhús og stofa með stórum arinn setur mikinn svip á allt húsið. Ný stór verönd með grilli er við húsið. Veiðimönnum ber að þrífa húsið fyrir brottför en einnig er hægt að kaupa þá þjónustu ef samið er um það fyrirfram. Veiðimenn skulu hafa rýmt húsið kl. 13 á brottfarardegi.
Gisting í Veiðihúsinu er innifalin í verði veiðileyfa. Umsjónarmaður er Árni Jón Eyþórsson og hægt er að ná í hann í síma 894 2248 og 451 1148
| Share |