Strengir

EnglishEnglish

SpainEspañol

FranceFrançaise

GermanDeutsch

ItaliaItaliano

Suomalainen

 

Jökla og Fögruhlíðará

Flottur lax úr Brúarhyl í Kaldá en þar má segja að sé yfirleitt alltaf lax yfir sumarið.Flottur lax úr Brúarhyl í Kaldá en þar má segja að sé yfirleitt alltaf lax yfir sumarið.

Spennandi og fjölbreytt laxveiðisvæði í mikilli sókn og flott veiðihús.

Jöklusvæðið sló sitt gamla met frá fyrra ári sumarið 2011 með 565 löxum og skyldi engan undra. Jökla sjálf fór ekki á yfirfall fyrr en um miðjan september og var því frábær veiði í henni sjálfri, sérstaklega á veiðistöðum við Fossá og þeim umtalaða veiðistað Steinboga sem er einnig mikill farartálmi fyrir laxagöngur upp í Jökuldal. En er einn magnaðasti veiðistaður og umhverfi sem finnst þó víðar væri leitað!

Við erum stöðugt að breyta og bæta þetta svæði þar sem ár hvert uppgötvast nýjir veiðistaðir og má í raun líkja þessu við veiðiævintýri þar sem menn geta ráfað um og prófað staði og svæði sem fáir eða enginn hefur prófað að bleyta færi í áður.

Þetta er sex stanga svæði frá og með 2. júlí, aðallega sem laxveiðisvæði þó að silungur veiðist áfram út allt sumarið. Um er að ræða Fögruhlíðará ofan þjóðvegar ásamt neðri hluta Jöklu frá Jökuldal en til svæðisins teljast Kaldá, Laxá og Fossá sem renna í Jöklu úr norðri og Hnefilsdalsá sem kemur að sunnan. Þetta er gríðarlega mikið og fjölbreytt svæði þar sem veitt er í miklu vatni í Jöklu og allt niður í litlar og nettar ár eins og Laxá sem er mjög skemmtileg fyrir litlar einhendur ásamt Fögruhlíðará.

Samtals er svæðið um 50 km langt og því verður afar rúmt um veiðimenn og miklir möguleikar á því að kanna ótroðnar slóðir. Þó er góð aðkoma  að mörgum veiðistöðum og ekki þörf á að ganga langar vegalengdir víðast hvar. Eingöngu er leyfð fluguveiði í júlí og ágúst enda hentar svæðið ákaflega vel til þess. Eftir það má veiða á maðk og spón.

NÝTT! Skylt er að sleppa öllum löxum 70 cm og stærri og og hirða má tvo laxa á dag á stöng undir þeim mörkum og sleppa öðrum.Að auki er skyllt að sleppa öllum löxum sem veiðast við Steinbogann og ofar í Jökuldal, enda eru vannýtt uppeldissvæði að finna þar sem æskilegt er að leyfa honum að hrygna sem mest.

Þessi lax kom úr Laxá í Jökulsárhlíð á veiðistaðnum Vað efst í ánni.Þessi lax kom úr Laxá í Jökulsárhlíð á veiðistaðnum Vað efst í ánni.

 

Veiðiþjónustan Strengir

Smárarimi 30

132 Reykjavík

Sími: 660 6890

Fax: 31 848679026

Netfang: ellidason@strengir.is

www.strengir.is