Strengir

EnglishEnglish

SpainEspañol

FranceFrançaise

GermanDeutsch

ItaliaItaliano

Suomalainen

 

Jökla og Fögruhlíðará silungsveiði

 Fögruhlíðarósinn getur verið magnaður veiðistaður og í einstöku umhverfi undir fjallinu.Fögruhlíðarósinn getur verið magnaður veiðistaður og í einstöku umhverfi undir fjallinu.

Gjöfular sjóbleikjuár, og einnig urriðar, sjóbirtingar og laxveiðivon.

Þó svo hér sé talað um silungsveiði er mikil laxavon á þessum svæðum og bendum við sérstaklega á spennandi kost í Jöklu II sem sjá má hér að neðan. Aðal silungsveiðisvæðin eru þó mismunandi eftir því hvenær er veitt eins og sjá má hér að neðan.

Vorveiði 1. júní - 30. júní

Silungsveiðin er vel þekkt í Fögruhlíðará, sérstaklega í Fögruhlíðarósi, sjávarlóni neðst í ánni. Þar upplifa margir ævintýri í bullandi sjóbleikjugöngum á hverju ári. Þarna er leyfilegt að veiða að nóttu til ef þannig stendur á sjávarföllum og er haft fyrir satt að kynngimagnað geti verið að standa vaktina þarna við þær aðstæður. Ekki síður ber að nefna þá urriðaveiðina á svæðinu og þá kannski sérstaklega í neðri hluta Fögruhlíðarár ofan við Fögruhlíðarósinn sjálfan.

Oft hefur vorið og fyrrihluti sumars gefið sérstaklega vel en auðvitað veiðist silungur líka allt sumarið og haustið líka og þá líka urriði og aðeins sjóbirtingur. 1. júní  - 30. júní er veitt í Fögruhlíðarós ásamt Kaldá, Fossá, Laxá og neðri hluta Jöklu með 4-6 stöngum, sérstaklega fyrir silung, þó að auðvitað geti lax hugsanlega líka slæðst með á  þessum tíma. Hægt að kaupa heila eða hálfa daga eða 2-3 daga holl, allt eftir óskum veiðimanna og stöðu lausra leyfa.

Engin skyldugisting er í veiðihúsinu Hálsakoti en skylt að koma þar við og skrá afla í veiðibók  sem þar verður.Verð á stöng á dag er kr. 9.000

Bæði sjóbleikja og sjóbirtingur veiðist í Fögurhlíðará og á Jöklusvæðinu.Bæði sjóbleikja og sjóbirtingur veiðist í Fögurhlíðará og á Jöklusvæðinu.

Fögruhlíðarós 1. júlí - 30. september

Til að mæta eftirspurn silungsveiðimanna höfum við brotið upp Jöklupakkann og bjóðum nú silungsveiðileyfi á tímabilinu 1. júlí – 30. september ár hvert. Svæðið sem um ræðir tekur til Fögruhlíðaróss ásamt svæðinu upp að þjóðvegsbrú. Í boði eru tvær stangir og engin skyldugisting er á þeim. Fast verð er á þessum stöngum eða 9.000 kr. á hvern stangardag. Að loknum veiðidegi eru menn þó skyldugir að koma við í veiðihúsinu Hálsakoti að skrá afla. Hægt er að kaupa heila eða hálfa daga eða 2-3 daga holl, allt eftir óskum veiðimanna og stöðu lausra leyfa. Veiðitími verður sveigjanlegur innan þess ramma að aðeins má veiða tólf stundir enda skipta fallaskipti miklu máli þarna. Margir hafa upplifað ógleymanlegar stundir við Fögruhlíðarós þegar ligjandinn er um hánótt, sem er dagsbjört um hásumarið sem kunnugt er, en það er afar sérstök stemming að veiða sjóbleikju á fallaskiptum að nóttu til. Mjög góð bleikjuskot voru í ósnum á liðinni vertíð og mjög vænar bleikjur í blan

Jökla II

Efri hluti Jöklu ofan ármóta Hnefilsdalsár ásamt þverám. Tilraunasvæði með sex stöngum, talinn nokkur silungur á svæðinu og einnig aukin laxveiðivon vegna seiðasleppinga. Verð á stöng á dag er kr. 3.000.- og veiðitími 1. júlí - 30. september. Leyfilegt að veiða með flugu, maðki og spón.

 

 

Veiðiþjónustan Strengir

Smárarimi 30

132 Reykjavík

Sími: 660 6890

Fax: 31 848679026

Netfang: ellidason@strengir.is

www.strengir.is