|
|
|
| Staðsetning: |
Fjarlægð frá Reykjavík: ca. 660 km Frá Egilstöðum: Samtals um 50 km. Ekið er um þjóðveg 1 sem leið liggur vestur til Akureyrar. Þegar komið er yfir brúna yfir Jöklu er beygt til hægri inn á þjóðveg 917. Rétt áður en farið er yfir brúna á Kaldá er beygt til vinstri og blasir þar glæsilegt veiðihús okkar við. Frá Akureyri: Ekið er um þjóðveg 1 í átt til Egilsstaða. Vestan megin við brúna yfir Jöklu rétt áður en komið er að er beygt til vinstri inn á þjóðveg 917. Rétt áður en farið er yfir brúna á Kaldá er beygt til vinstri og blasir þar glæsilegt veiðihús okkar við. |
| Veiðisvæði: | Jökla neðan veiðimarka ofan við ós Hneflu ásamt, Laxá, Kaldá, Fossá og einnig Fögruhlíðarár ofan þjóðvegs. |
| Tímabil: |
2. júlí – 30. september |
| Veiðileyfi: |
Tveir eða þrír dagar í senn frá hádegi til hádegis. |
| Daglegur veiðitími: | Daglegur veiðitími 1. júlí - 31. júlí kl. 7-13 og 16-22 en frá 1. ágúst til 10. september 15-21 eftir hádegi. Eftir það 15-20 daglega eftir hádegi. Brottfarardag síðasta morguninn skal veitt til kl. 12:00. |
| Fjöldi stanga: |
Leyfðar eru 6 stangir |
| Verð: |
Stöng á dag á bilinu kr. 29.800 ─ 39.800 og innifalið gæsaveiði eftir 20. ágúst á einkasvæðum í nágrenninu. |
| Veiðireglur: | Fluga eingöngu leyfð í júlí og ágúst en maðkur og spónn einnig leyfður í september. Nú er skyllt að sleppa öllum löxum 70 cm og stærri. Leyfilegt er að hirða tvo laxa á stöng á dag undir þeim mörkum, nema í Steinboganum og upp Jökuldalinn en þar skal öllum laxi sleppt. |
| Vinsælar flugur: | Snælda, Rauð Frances, Svört Frances, Friggi, Sunray Shadow, Black and Blue |
| Veiði síðastliðið ár: |
565 laxar |
| Umsjónarmaður/veiðivörður: | Guðmundur Ólason 471 1019 og 660 6893 |
