Á bökkum Kaldár stendur nýtt og stórglæsilegt veiðihús til afnota fyrir veiðimenn á Jöklusvæðinu. Húsið sem var byggt árið 2007 býður uppá frábæra aðstöðu í átta tveggja manna herbergjum, hvert með sér baðherbergi og sturtu, upphitaðri vöðlugeymslu, aðgerðarherbergi með frystikistu, frábærri setu- og borðstofu með arin, eldhúsi með öllum nauðsynlegum tækjum og skemmtilegri verönd að flatmaga á í hléinu og góðviðrisdögum.
Rétt áður en komið er að brúnni yfir Kaldá er beygt til vinstri við afleggjara merktur Mássel (ef komið er að sunnan) og þá blasir veiðihúsið við.
Hægt er að velja fullt fæði sem kostar þá kr. 19.800 á mann á dag eða taka eingöngu gistingu og elda þá sjálfir eftir nánari samkomulagi.
Umsjónarmaður er Guðmundur Ólason í síma 471 1019 og 660 6893
Fyrir frekari upplýsingar um gistingu í Veiðihúsinu Hálsakoti utan veiðitíma smellið á hlekk hér að neðan.
Veiðihúsið Hálsakot utan veiðitíma
| Share |