Stórurriði í Stöðvarhyl vorið 2010
Stórurriðaveiði, gott hús og stutt frá Reykjavík.
Vatnið í Minnivallalæk er kristaltært eins og sjá máMinnivallalækur á engan sinn líka í heiminum. Kristaltært og frjósamt lindarvatnið veitir umgjörð utan um einhver allra bestu búsvæði urriða sem fyrirfinnast á Íslandi og sennilega víðar um heim. Staðsetning lækjarins á yngsta landsvæði landsins gerir það að verkum að þegar vatnið kemur upp á yfirborðið undan hrauninu er hitastig þess mjög jafnt, leiðnin há og frjósemi mikil. Við þessi skilyrði er skordýralíf í blóma og sökum þess hversu hægrennandi lækurinn er hentar hann urriða feykivel.
Oft heyrum við efasemdaraddir frá erlendum veiðimönnum sem ekki trúa því að svona stórir urriðar geti leynst í svona litlum læk en menn þurfa ekki annað en velta við steini eða róta upp botninum til að skilja það hvernig urriðinn í Minnivallalæk getur náð slíkum stærðum sem raun ber vitni. Þessi einstöku skilyrði gera það líka að verkum að fiskurinn er ljónstyggur og í ákveðnum veðurskilyrðum alveg ótrúlega erfiður við að eiga. En það er einmitt ástæðan fyrir því að bestu fluguveiðimenn heims leggja leið sína í Minnivallalæk ár hvert til að reyna við þennan fallega fisk sem lætur ekki ná sér svo auðveldlega. Þegar þeir svo setja í stærstu urriða sem þeir hafa nokkurn tímann séð er ferðin og erfiðið svo sannarlega búið að borga sig.
Bandarískur veiðimaður með glæsilegan urriða Júní 2009Það er óvíða í heiminum sem veiðimenn eiga möguleika á að setja í tíu punda urriða í pínulitlar þurrflugur í stærðum 18 og jafnvel minni. Á hverju ári veiðast urriðar sem eru um og yfir 10 pund og fjöldi fiska á bilinu 4-8 pund. Stærsti urriðinn sumarið 2011 var 1 meter og viktaður 14 pund úr Stöðvarhyl! Vorið getur oft á tíðum verið stórkostlegt og fyrstu dagana eftir opnun 1. apríl er oft hægt að fá ævintýralega veiði á straumflugur og stærri púpur. Þegar líða tekur á vorið og snemmsumars kviknar á lífríki lækjarins fyrir alvöru og hlutverk veiðimanna fer að verða erfiðara, flugurnar minnka og þurrfluguveiðin byrjar. Um mitt sumar veiða menn á pínulitlar flugur og örgrönnum taumum, skríða um bakkana og kasta á fiska sem menn sjá vel í kristaltæru vatninu. Þegar hausta tekur stækka flugur á ný og fiskur fer aftur að verða árásargjarn. Oft lenda menn í ævintýrum í haustveiðinni í læknum. Minnivallalækur er sannarlega paradís urriðaveiðimannsins.
Aðvörun
Að gefnu tilefni er veiðimönnum bent á að hestar geta komist að bílum við lækinn og engin ábyrgð er tekin á tjóni sem þeir geta valdið. Fylgist því með bílum ykkar við veiðar!