Strengir

EnglishEnglish

SpainEspañol

FranceFrançaise

GermanDeutsch

ItaliaItaliano

Suomalainen

 

Tungulækur

 Veitt í Holunni í Tungulæk, á baksýn er veiðistaðurinn Opið þar sem lækurinn rennur út í Skaftá. Veitt í Holunni í Tungulæk, á baksýn er veiðistaðurinn Opið þar sem lækurinn rennur út í Skaftá.

Besta sjóbirtingsá landsins og frábært veiðihús.

Tungulækur er án vafa ein best sjobirtingsá landsins og á fáa sinn líka í heiminum. Þarna hafa gengið tröllasögur um mikla veiði og þrátt fyrir lítið veiðiálag hafa oft verið að veiðast um 1000 sjóbirtingar og einnig reytingur af laxi, bleikju og urriða.Veiðiþjónustan Strengir getur nú boðið þennan rómaða Tungulæk til sölu frá 2. apríl og til 20. október árið 2011. Sjóbirtingsveiðin er mest á vorin í apríl og haustin, en fyrstu sjóbirtingar veiðast þó oftast seint í júlí og er að ganga flesta daga upp frá því. Stærri birtingurinn kemur oft fyrst og rýkur beint upp í Breiðuna fyrir neðan fossinn sem er efst í læknum. Er tilkomumikið að sjá þessa stóru fiska búnkast þar er líður á sumarið og hylurinn orðin fullur af fiski. Og gist verður í glæsilegu nýju veiðihúsi sem er staðsett við Hæðarlæk ekki langt frá Tungulæk.

Veiðiþjónustan Strengir hefur aðgang að læknum á vorið og haustið 2012, en verð hafa hækkað frá landeiganda og því verður ekki komist hjá hækkun til veiðimanna. Spyrjið um nánari upplýsingar.

Glæsilegur risabirtingur úr Faxa neðarlega í Tungulæk.Glæsilegur risabirtingur úr Faxa neðarlega í Tungulæk.

Share

Veiðiþjónustan Strengir

Smárarimi 30

112 Reykjavík

Sími: 660 6890

Fax: 31 848679026

Netfang: ellidason@strengir.is

www.strengir.is