
Nokkuð áður en komið er að Tungulæk er veiðihúsið til hægri á Landbrotsveginum þar sem sjá má glæsilegt hús á þrem hæðum með gott útsýni yfir nágrennið. Þrjú tveggja mana herbergi með uppbúnum rúmum og hvert með sér baðherbergi með handklæðum. Tveir geta því dvalið í veiðihúsinu fyrir hvert keypt veiðileyfi. Einnig rúmgóð setustofa, borðstofa og eldhús. Grill á staðnum. Í skoðun er einnig hvort þráðlaust internet verði boðið í þessu húsi yfir veiðitímann og verður þá skýrt frá því síðar. Þessu fyrsta flokks gisting er innifalinn í veiðileyfunum. Mæting ekki fyrr en kl. 15.00 daginn sem veiði hefst og veiðihús yfirgefið eigi síðar en en kl. 13.00 í lok síðasta veiðidags. Skyllt er að þrífa vel og hirða rusl við brottför. Hundahald er ekki leyft í veiðihúsinu.

| Share |