Strengir

EnglishEnglish

SpainEspañol

FranceFrançaise

GermanDeutsch

ItaliaItaliano

Suomalainen

 

Laust í rjúpu næstu helgi

Opnunarhelgin 26. -28. október í rjúpunni gaf á milli 50-60 rjúpur bæði í Breiðdal og á Jöklusvæðum og voru á milli 6-9 manns að veiðum á hvorum stað. Rjúpan var dreifð og þurfti að hafa mikið fyrir því að finna hana en flestir fengu þó eitthvað í soðið. Það má segja að helgin á eftir 3.- 4. nóvember hafi fokið á haf út vegna óveðursins og vonlaust að veiða þann laugardag og síðan erfitt að komast á svæðin vegna ófærðar sunnudaginn 4. nóvember. 

Nánar...

Lokatölur og bókanir hafnar fyrir 2013!

Þá eru allar lokatölur komnar í hús fyrir þetta sumar og eins og víða eru laxveiðitölurnar í lærri kantinum hjá okkur einnig, og ekki hjálpaði til einstaklega erfið skilyrði í júlí og ágúst.

Nánar...

Frábær veiði núna á Jöklusvæðinu

Það hefur verið illa bókað á Jöklusvæðinu í viku eða svo þar til 5 stangir hófu veiðar þar síðdegis í gær. Og þá var Jökla sjálf óðum að tærast enda yfirfallið nýfarið af Hálslóni sem er óvenju snemmt að hausti til. En það var aldeilis fjör því fyrstu vaktina lönduðu stangirnar 9 löxum og var það bæði í hliðaránum og í Jöklu sjálfri sem veiðin var í.

Nánar...

Stórlaxamyndband úr Hrútu!

Hann Nils Jörgensen gerði góðan túr í Hrútafjarðará á sunnudaginn var og afraksturinn má sjá á þessu myndbandi hér. Og fleirri stórlaxafréttir því hollið sem tók við var að landa í dag einum 97 cm úr Sírus svo þeir virðast vera margir stórir þar.

Nánar...

Loks vatn og veiði í Hrútu!

Það hefur rignt hressilega upp á Holtavörðuheiði og mikið og gott vatn var komið í Hrútafjarðará í gærmorgun. Strax þá komu á land 3 laxar í Hólmahyl sem er rétt fyrir ofan Dumbafljót neðst í ánni. Eftir hádegi kom í ljós að mikið af laxi var komið upp í efstu staði bæði í Hrútu sjálfri og í Síka og settu menn í nokkra laxa þar en náðu bara einum á land.

Nánar...

Síða 3 af 18

Veiðiþjónustan Strengir

Smárarimi 30

112 Reykjavík

Sími: 660 6890

Fax: 31 848679026

Netfang: ellidason@strengir.is

www.strengir.is