Strengir

EnglishEnglish

SpainEspañol

FranceFrançaise

GermanDeutsch

ItaliaItaliano

Suomalainen

 

Rigning í kortunum og laust í Hrútu

Hrútafjarðará hefur ekki farið varhluta af  þurrkunum og með eindæmum lítið vatn og veiðin verið eftir því undanfarið. En samkvæmt veðurspám á að rigna er líður á vikuna og þá getur veiðin verið fljót að breytast. Það vill svo til að helgin næsta 10. -12. ágúst er laus í tveggja daga holli, og einnig er annað holl 19. -21. ágúst laust. Að öðru leyti er áin fullbókuð í sumar.

Nánar...

19 laxa dagur á Jöklusvæðinu

Það hefur verið góður gangur á Jöklusvæðinu og t.d. þann 4. ágúst veiddust 19 laxar á svæðinu. Var dreifinginn víða í Jöklu sjálfri, þar af 9 laxar ofan Steinboga, en einnig veiddist í  hliðaránum Kaldá og Laxá líka.

Nánar...

Laxinn kominn strax upp í Jökuldalinn!

Síðdegis 1.ágúst var laxastiginn við Steinbogann í Jöklu opnaður og þóttu menn fljótlega verða var við fiskför upp stigann stuttu síðar. Í morgun voru síðan erlendir veiðimenn úr Breiðdal komnir á svæðið fyrir ofan enda hefur veiði verið róleg í Breiðdalsá vegna eindæmis vatnsleysis og þeim gefin kostur á að reyna þennan nýja möguleika.

Nánar...

Kom kippur í gær

Það komu 14 laxar á land í dag á Jöklusvæðinu og 9 laxar í Breiðdal sem gerir þetta besta daginn á hvoru svæði í sumar. Var smálax að koma í bland við stórlax, en sá smærri hefur vantað mikið hingað til. En þeir stóru eru vænir og meðalþyngdin í Breiðdal er tæp 5 kg, og sést þar einnig meira af risum kringum meterinn en oft áður.

Nánar...

Skemmtilegt myndband úr Jöklu!

Nýlega var Borgar Antonsson leiðsögumaður að veiða í Jöklu við Steinbogann og myndaði viðureign við lax sem tók aftast á brotinu þar.

Nánar...

Síða 4 af 18

Veiðiþjónustan Strengir

Smárarimi 30

112 Reykjavík

Sími: 660 6890

Fax: 31 848679026

Netfang: ellidason@strengir.is

www.strengir.is