Strengir

EnglishEnglish

SpainEspañol

FranceFrançaise

GermanDeutsch

ItaliaItaliano

Suomalainen

 

Beðið eftir rigningu

Elstu menn í Breiðdalnum muna ekki eftir ánum svo vatnslitlum í júlí eins og verið hefur undanfarna daga. Einn daginn rigndi reyndar smávegis og þá var sett í 8 - 9 laxa og landað 5 löxum, en annars hefur þetta verið mjög rólegt.

Nánar...

....og fleiri stórir!

Stórlaxaveislan heldur áfram hjá okkur fyrir austan og í morgun veiddist nýrunninn hængur í Réttarhyl í Breiðdalsá sem var 1 meter á lengd og viktaður 11 kg, gríðarlega þykkur og í miklum holdum.

Nánar...

Stórlaxaævintýri í Breiðdal og fleiri fréttir

Í morgun kom enn einn stórlaxinn á land í Breiðdalsá er 98 cm hængur og tæpir 50 cm í ummáli veiddist í Gljúfrinu af Borgari Antonssyni leiðsögumanni. Laxinum var sleppt en er áætlaður ekki undir 10 kg  verður bókaður það í veiðibók. Þá eru komnir fimm laxar á land á bilinu 90-98 cm og af um 30 löxum samtals veiddum á fyrstu fimm dögunum eru einungis 9 fiskar undir 80 cm!  Og allir í góðum holdum og virðist koma vel aldnir af hafi. Fleirri hafa sést og líklega tímaspursmál hvenær 100 cm múrinn verður rofin.

Nánar...

Sex laxar úr Breiðdalsá og tveir úr Jöklusvæðinu í morgun

Fyrsti laxinn kom óvænt á land 30. júní í gær er 68 cm hrygna veiddist langt upp á silunga og laxasvæði fyrir ofan fossinn Efri-Beljanda er Reimar Ásgeirsson var að renna þar fyrir silung við veiðistaðinn Flögunesbakka. Er það mjög sérstakt að lax sé komin þangað upp eftir svona snemma, en lofar góðu með það svæði.

Nánar...

Ódýr kostur í silung og lax

Breiðdalsá er vel bókuð í sumar í júlí og ágúst, en það vita ekki allir að það er ennþá hægt að komast þá í 4 stanga svæði neðst og efst í ánni fyrir blandaða veiði af laxi, sjóbleikju og urriða án fæðiskyldu. Þá er gist í þessu húsi sem rúmar allt að 6-8 mans í fimm herbergjum og rúm uppbúinn innifalinn.

Nánar...

Síða 5 af 18

Veiðiþjónustan Strengir

Smárarimi 30

112 Reykjavík

Sími: 660 6890

Fax: 31 848679026

Netfang: ellidason@strengir.is

www.strengir.is