Laxateljarinn var settur niður í laxastigann við fossin Efri-Beljanda í dag og kíkt var í hylinn fyrir neðan í leiðinni. Og þar mátti sjá tvo væna laxa sveima um hylinn svo hann er mættur í ánna. Opnuninn verður ekki fyrr en 1.júlí og gæti orðið fjör þá er óhætt að segja.
Laxinn mættur í Breiðdalinn og mikið lífríki í Jöklu
Komast í Jöklu lax í júlí?
Það lítur vel út með byrjun laxveiðinnar í ár og laxar að sjást víða. Því bíðum við spenntir eftir opnunum í okkar ám sem verður ekki fyrr en 1. júlí. Við eigum laust á Jöklusvæðinu í fyrstu viku júlí eða rúmlega það til 11. júlí. Það hefur verið komin lax alltaf þá en ekki mikið stundað hingað til svo snemma og hægt að komast þarna í laxveiði á góðu verði.
Frábær byrjun í Fögruhlíðarós
Besta byrjun sem við munum eftir hefur veriði í sjóbleikjunni í Fögruhlíðarós núna fyrstu dagana í júní. Um 30-40 bleikjur hafa veiðst og mikið líf eins og sjá má á frá Guðmundi Magna Bjarnasyni (Mummi) sem sendi mér línu:
Stórir urriðar nánast eingöngu að veiðast
Veiðin hefur verið ágæt eftir að fór að hlýna í Minnivallalæk, en það sem vekur eftirtekt er hvað allur fiskur er stór sem kemur á land. Varla urriði undir 1,5 kg og margir 4+ og allt að rúm 8 kg! T.d. kom einn um helgina 5,5 kg og meðalþyngdin er væntanlega eins og í laxveiðiá! Nú er mikið bókað framundan, eitthvað er aðeins laust í næstu viku en annars ekkert fyrr en helgina 20. - 22. júlí, og svo frá 5. ágúst byrjar að losna aftur um daga.
Fyrstu bleikjurnar úr Breiðdalsá
Fyrir stuttu fengust fyrstu sjóbleikjurnar á silungasvæði Breiðdalsár svo hún er allavega mætt, en lítið hefur verið reynt að veiða vegna kulda ennþá á svæðinu. Hann Heimir Karlsson gamalreyndur leiðsögumaður við ánna lét sig hafa það og náði þrem bleikjum 54 cm, 50cm og svo eina minni. Varð hann var við fleirri fiska sem náðu ekki að taka almennilega. En allavega góðar fréttir að bleikjan er mætt á svæðið.
Fleiri greinar...
Síða 6 af 18







Eins og víða voru laxveiðitölur í lærri kantinum hjá okkur einnig 2012, og ekki hjálpaði til einstaklega erfið skilyrði í júlí og ágúst. Aðstæður skánuðu í september er loks kom úrkoma, og lax var að ganga til lokadags 30. september í bæði Breiðdalsá og á Jöklusvæðinu.Og meðalþyngdin var góð, sérstaklega í Breiðdalsá eða tæp 5 kg þar og mikið um lax 80 cm og stærri.