Hin þekkti stórfiskaveiðimaður Nils F. Jörgensen var við veiðar í Minnivallalæk um helgina ásamt vinkonu sinni Ástu og fengu þau frábæra veiði, boltafiska allt að 8.1 kg eins og lesa má hér fyrir neðan frá honum og sjá á myndum..glæsileg veiði!
Risaurriðar um helgina
Glæsileg tvöföld afmælisveisla, Strengir 20 ára og Þröstur 50 ára!
Það er skammt stórra höggva á milli þar sem nýlega var haldið upp á tvöfalt afmæli með stæl í Akóges salnum í Lágmúla, Strengir 20 ára og Þröstur 50 ára!
Minni opnaði í gær og nýr þriggja ára samningur með Hrútafjarðará
Fyrstu veiðimenn fóru til veiða í Minnivallalæk í gær og fengu tvo fiska, 60 cm úr Djúphyl og veiðimaður var Gunnlaugur Rósarsson tannlæknir og 47 cm úr Stöðvarhyl hjá veiðifélaga hans Udo Lukas. Voru þeir þarna í sinni fyrstu heimsókn í lækinn. Nú hefur kólnað hressilega en næstu veiðimenn eru bókaður síðar í vikunni en þá er von á að fari hlýnandi sem yrði til bóta fyrir veiðina í Minnivallalæk.
Nýr 10 ára samningur um Minnivallalæk og opnunin var að losna!
Um helgina var gerður nýr 10 ára samningur um áframhaldandi leigu Strengja á Minnivallalæk í Landssveit, en nú þegar höfum við haft hann í leigu í 20 ár svo þarna stefnir í 30 ára samningstíma! Samstarfið við Veiðifélag Minnivallalækjar hefur verið gott og hlakka ég til að vinna áfram með félaginu lýkt og verið hefur til þessa.
Frábær veiði á stöng per daga á Jöklusvæðinu
Nú má sjá hér myndasögu frá Guðrúnu Unu Jónsdóttur og Árna Jóhannessyni frá Akureyri en þau veiða með Mokveiðifélaginu árlega í ágúst á Jöklusvæðinu, og mokveiddu á sína stöng sl. sumar eins og sjá má á þessum myndum. Fengu þau 13 laxa á sína stöng í þrjá daga og í framhaldi af því er fróðlegt að skoða betur veiði per stöng á svæðinu.Fleiri greinar...
Síða 7 af 18







Eins og víða voru laxveiðitölur í lærri kantinum hjá okkur einnig 2012, og ekki hjálpaði til einstaklega erfið skilyrði í júlí og ágúst. Aðstæður skánuðu í september er loks kom úrkoma, og lax var að ganga til lokadags 30. september í bæði Breiðdalsá og á Jöklusvæðinu.Og meðalþyngdin var góð, sérstaklega í Breiðdalsá eða tæp 5 kg þar og mikið um lax 80 cm og stærri.