Það voru vægast sagt erfiðar aðstæður til rjúpnaveiða í Breiðdal og á Jöklusvæðinu sl. helgi er veiðar hófust. Engin snjór og nánast sumarhiti niður í dölunum á föstudag og lítið um rjúpu á hefbundnum svæðum. En það var eins gott að nýja svæðið upp á Jökuldalsheiði var með því þar var nægur snjór og rjúpa líka!
Rjúpnaveiði
Aukið framboð á rjúpnasvæðum okkar við Jöklu
Það styttist í rjupnaveiðina sem hefst næsta föstudag 28. október. Það er fullbókað á rjúpnasvæðum og í veiðihúsinu í Breiðdal alla 9 dagana sem leyft er að veiða, en vegan forfalla er eitthvað laust á Jöklusvæðum og í gistingu í veiðihúsinu þar og kostar dagurinn með gistingu kr. 20.000 á byssu og 6-8 byssur leyfðar. Er þar veitt á þrem jörðum, Sleðbrjót rétt við Veiðihúsið Hálsakot, Skriðufell neðar í Jökulsárhlíðinni ásamt Hrólfsstöðum upp í Jökuldal.
Veiði lokið í Breiðdalsá, Jöklusvæðinu, Minnivallalæk og Hrútu
Þá eru lokatölur úr Breiðdalsá, Jöklusvæðinu og og Hrútu komnar í hús og þær eru:
Breiðdalsá: Það var brokkgeng síðasta vikan og rúmlega það í Breiðdalsá vegna mikilla flóða sem komu reglulega vegna rigninga og náði áin aldrei að detta í eðlilega vatnshæð svo um hægðist verulega í laxveiðinni. Lokatalan var 1.430 laxar eins og sjá má á rafrænu veiðibókinni á vef okkar,...
Komin langt yfir metið í Breiðdalsá og sjóbirtingar á þurrflugu í Tungulæk!
Breiðdalsá er komin í um 1350 laxa sem er vel yfir fyrra met sem er 1178 laxar frá því í fyrra og ekkert lát á veiðinni þar. Til dæmis veiddust 30 laxar í gær í Breiðdalsá og hann er ennþá að ganga, líkt og einnig á Jöklusvæðinu sem er komið í 525 laxa með Fögruhlíðará. Þar komu 12 laxar á land í gær þrátt fyrir yfirfall enda er veiðin nú að mestu í hliðarám sem renna í Jöklu ásamt Föruhlíðará sem rennur beint til sjávar og er ekki tengd heldur jökulvatninu.
Miklar smálaxagöngur í Breiðdalsá og annar vænn úr Hrútu!
Veiðin eykst bara í Breiðdalsá þrátt fyrir erfiðar aðstæður, flóð, rok og núna kulda og síðustu tveir dagar hafa gefið tæplega 50 laxa á dag! Og mikið er það nýr smálax sem er að hellast inn í bland við stórlax og er ekkert lát á göngum. Um 1.130 laxar eru komnir á land og stutt í nýtt met frá því í fyrra sem var 1.178 svo reikna má með því að á bilinu 1.500-1.800 laxar verði lokatalan ef ekkert óvænt kemur upp á næstu þrjár vikur til mánaðamóta er veiði lýkur.
Fleiri greinar...
Síða 9 af 18







Eins og víða voru laxveiðitölur í lærri kantinum hjá okkur einnig 2012, og ekki hjálpaði til einstaklega erfið skilyrði í júlí og ágúst. Aðstæður skánuðu í september er loks kom úrkoma, og lax var að ganga til lokadags 30. september í bæði Breiðdalsá og á Jöklusvæðinu.Og meðalþyngdin var góð, sérstaklega í Breiðdalsá eða tæp 5 kg þar og mikið um lax 80 cm og stærri.