Strengir

EnglishEnglish

SpainEspañol

FranceFrançaise

GermanDeutsch

ItaliaItaliano

Suomalainen

 

1000 laxar í Breiðdalsá og nýtt met í Jöklu!

Í dag fór Breiðdalsá yfir 1000 laxa múrinn og veiðin verið góð þrátt fyrir mikil flóð undanfarna daga í kjölfar rigninga. Þegar sjatnar enn meira í ánni má búast við á bilinu 25-40 laxa veiði á dag og þá verða tölur fljótar að breytast. Ef aðstæður verða góða í september má búast við að vel á annað þúsund laxar veiðist  í heildina í sumar, en við sjáum til.

Nánar...

Tungulækur að vakna og risafiskar í Minni og Jöklusvæðinu!

Það er ekki bara lax í okkar ám og eftir rólegan ágúst er loks að koma sjóbirtingur í Tungulæk. Í gærkvöldi sást töluvert líf á Breiðunni efst í læknum og fiskur að stökkva um hylinn og upp í fossinn þar. Náðu veiðimenn þá 5 sjóbirtingum og misstu fleirri. Mikið vatn er í læknum og erfitt er að finna fisk en vonandi með kólnandi veðri á næstunni fer að sjatna vatnið í honum. Tungulækur er án vafa ein besta sjóbirtingsá landsins og verður spennandi að fylgjast með þróunni á næstu dögum og vikum.

Nánar...

Risalax úr Hrútu og stórkostlegur morgunn í Breiðdal

Enskur veiðimaður fékk í vikunni einn stærsta lax í sögu Hrútafjarðarár er hann var að veiða í efsta veiðistaðnum Réttarfossi. Eftir langa viðureign landaði hann nýrunni hrygnu sem hann mældi á bakkanum sem 106 cm langa! Tók hann einnig mynd af henni áður en hann sleppti henni aftur út í hylinn.

Nánar...

Veiðidagbókin komin í lag og Jökla yfir 100 laxa

Loksins hefur rafræna veiðidagbók okkar í Breiðdalsá komist í lag eins og sjá má vefnum okkar www.strengir.is . Og veiðin er komin yfir 300 laxa og að langmestu leyti vænn tveggja ára lax sem hefur veiðst enn, á bilinu 70-85 cm og í áberandi góðum holdum þetta sumarið.

Nánar...

Fjör í Breiðdalsá og Jöklu

Veiðin bara eykst í Breiðdalsá og í gær komu 25 laxar á land og mikið af laxi að ganga, megnið stórlax en þó eitthvað af vænum smálaxi með. Áin fer að detta í 200 laxa í dag eða á morgun sem er frábær veiði frá 1. júlí er opnunin var.
Á sama tíma í fyrra voru komnir 80 laxar en áin endaði þá í tæplega 1.200 löxum, svo miðað við það gæti stefnt í 2000 laxa í ár, en það væri auðvitað frábær árangur.

Nánar...

Síða 10 af 18

Veiðiþjónustan Strengir

Smárarimi 30

112 Reykjavík

Sími: 660 6890

Fax: 31 848679026

Netfang: ellidason@strengir.is

www.strengir.is