Það fengust 15 laxar bara á einum degi í Jöklusvæðinu núna í vikunni og er dagsveiðin þá farin að slá hátt upp í svipað og í Breiðdalsá ef það heldur áfram. Reyndar er von á yfirfalli á næstu dögum úr Kárahnjúkastíflu sem er óvenju snemma. Í fyrra var það í september sem það kom, en þó er það ekki mikið vandamál þar sem megnið af veiðinni er í þverám sem renna í Jöklu.
Jöklusvæðið tekur kipp
Sjatnar í Breiðdalnum og risarnir mættir þar og einnig í Hrútu!
Það er fyrst í dag sem hægt hefur verið að veiða Breiðdalsá almennilega frá opnun vegna flóða og morguninn gaf 10 laxa. En stóru tíðindin eru að þá kom að því að þeir stóru mættu til leiks og veiddist á Skammadalsbreiðu lax í morgun sem vó 12,5 kg og var hængur 106 cm langur!
Fréttir úr Breiðdal og Jöklu
Það hefur rignt óhemju í Breiðdalnum meira og minna síðan síðdegis á opnunardaginn 1. Júlí og kraftaverk að það veiðist þó eitthvað enda Breiðdalsá nú mikið stórfljót.
Góður morgun í Hrútu og Breiðdalsá
Það byrjaði mjög vel í Hrútu í morgun laxveiðin. Tveir stórlaxar 86 og 83 cm náðust og tveir aðrir minni komu líka á land. Nokkra aðra var sett í sem fóru af. Var lax greinilega nokkuð dreifður um ánna og vart alveg upp í Réttarstreng.
Fréttir af fiskum og veiðileyfum
Fyrir nokkrum dögum sáust laxar í Brúarhylnum í Síká við Hrútafjarðará sem er óvenju snemmt. Allavega tveir laxar voru þar á ferð og hugsanlega sá þriðji. Ekki var sjálf Hrútafjarðará skoðuð nema í veiðistaðnum Bálk við gömlu brúna og þar sást ekki lax. En það er öruggt að fleiri laxar eru á svæðinu ef hann er komin í Síká. Áin er nánast uppseld, laust er um mánaðarmótin júlí-ágúst 1 stöng, en hugsanlegt að losni eitt holl í júlí, skýrist á næstunni.
Fleiri greinar...
Síða 17 af 18







Eins og víða voru laxveiðitölur í lærri kantinum hjá okkur einnig 2012, og ekki hjálpaði til einstaklega erfið skilyrði í júlí og ágúst. Aðstæður skánuðu í september er loks kom úrkoma, og lax var að ganga til lokadags 30. september í bæði Breiðdalsá og á Jöklusvæðinu.Og meðalþyngdin var góð, sérstaklega í Breiðdalsá eða tæp 5 kg þar og mikið um lax 80 cm og stærri.